Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 26. september 2021 13:06
Victor Pálsson
Leikmaður Arsenal við Martinez: „Þvílíkur leikmaður"
Mynd: EPA
Emiliano Martinez, leikmaður Aston Villa, átti góðan leik í gær er hans lið vann óvæntan 1-0 sigur á Old Trafford.

Manchester United var andstæðingur Villa en það síðarnefnda hafði betur með einu marki gegn engu.

Man Utd gat jafnað metin á 93. mínútu í uppbótartíma en Bruno Fernandes klikkaði þá á vítaspyrnu.

Martinez var seldur frá Arsenal í fyrra fyrir 17 milljónir punda, eitthvað sem margir stuðningsmenn Arsenal voru ekki sáttir við.

Martinez hefur síðan þá stimplað sig inn sem einn besti markmaður deildarinnar og er hans saknað á Emirates.

Gabriel Martinelli, leikmaður Arsenal, er einn af þeim sem saknar Martinez og sendi honum kveðju á Instagram í gær.

„Þvílíkur leikmaður," skrifaði Martinelli við færslu Martinez þar sem hann fagnaði sigri gærdagsins.

Færsluna sjálfa má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner