Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 26. september 2021 19:18
Brynjar Ingi Erluson
Lloris: Þeir stútuðu okkur
Hugo Lloris
Hugo Lloris
Mynd: EPA
Hugo Lloris, fyrirliði Tottenham, var sár og svekktur eftir 3-1 tapið gegn Arsenal í nágrannaslagnum í dag.

Tottenham fékk á sig þrjú mörk í fyrri hálfleik en sást þó meira líf í liðinu í þeim síðari. Heung-Min Son skoraði á 79. mínútu en þeir hvítklæddu komust ekki lengra en það.

Lloris sá batamerki í síðari hálfleik en viðurkenni að þeir fóru illa að ráði sínu á fyrstu 45 mínútunum.

„Við misstum gersamlega stjórn á leiknum í fyrri hálfleik. Þeir stútuðu okkur en náðum að bregðast ágætlega við eftir það," sagði Lloris.

„Þetta er pirrandi og mikil vonbrigði. Þetta er augnablikið þar sem við þurfum að standa saman og halda áfram. Leikmennirnir voru klárir en misstu stjórn og töpuðu jafnvægi á miðjunni."

„Þegar þú færð þrjú mörk á þig þrjá leiki í röð þá er ekki hægt að fela sig á bakvið þau vandamál. Við erum samt sem áður atvinnumenn og það er mikið eftir. Við þurfum bara að vera rólegir,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner