Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 26. september 2021 10:00
Victor Pálsson
Óvænt einn launalægsti leikmaður Real - Bíður eftir nýju tilboði
Mynd: Getty Images
Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid, bíður eftir því að fá nýtt samningstilboð frá spænska félaginu.

Vinicius er 21 árs gamall væng og sóknarmaður og hefur reynst Real ansi mikilvægur á þessu tímabili.

Brassinn hefur nú spilað 125 leiki fyrir Real í öllum keppnum og hefur skorað fimm mörk í sjö leikjum á leiktíðinni sem er ansi góður árangur.

Vinicius er einn af launalægstu leikmönnum Real en hann fær 3,2 milljónir evra í árslaun líkt og þeir Dani Ceballos, Jesus Vallejo og Andriyi Lunin.

Hann fær hins vegar miklu meira að spila en þessir leikmenn og vill nú hækka þessi laun sem Real mun að öllum líkindum gera.

Stjórn Real hyggst bjóða Vinicius nýjan samning á næstunni og játar það að núverandi laun leikmannsins séu ekki í takt við frammistöðu og leiktíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner