Fotbolti.net
26.10.17 - 19:27
Ívan Guðjón Baldursson

Hallur Flosason framlengir til 2019 (Staðfest)

Hallur Flosason framlengir til 2019 (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hallur Flosason er búinn að framlengja samning sinn við Skagamenn til tveggja ára, eða út sumarið 2019.

Hallur er uppalinn Skagamaður og hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin misseri.
Varnarmaðurinn hefur spilað 65 leiki fyrir meistaraflokk og mikilvægur fyrir framtíðina, enda aðeins 24 ára gamall.

„Ég er mjög ánægður með að hafa framlengt samninginn og fá tækifæri til að vinna áfram með þessum strákum sem eru í liðinu,\" sagði Hallur.

„Svo verður auðvitað spennandi að fá að vinna með Jóa Kalla og Sigga Jóns, mér lýst mjög vel á þá. Það er heiður að fá að vera partur af þessari uppbyggingu sem er í gangi á Skaganum og allir í liðinu eru ákveðnir í því að taka liðið upp á næsta level.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.