Fotbolti.net
26.10.17 - 16:59
Hafliði Breiðfjörð

Pétur Péturs tekur við Val (Staðfest)

Pétur við undirskriftina í dag.

Pétur við undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fyrrum landsliðsmaðurinn Pétur Pétursson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Vals en þetta var staðfest á fréttamannafundi á Hlíðarenda nú rétt í þessu. Hann semur við félagið til þriggja ára.

Fyrir tíu dögum var tilkynnt að Úlfur Blandon myndi hætta sem þjálfari Valskvenna en liðið endaði í þriðja sæti Pepsi-deildar kvenna á liðnu tímabili.

Pétur hefur nú tekið við en hann var í sumar aðstoðarþjálfari HK í Inkasso-deildinni.
Á þjálfaraferlinum hefur Pétur meðal annars þjálfað meistaraflokka karla hjá KR og Fram. Þá var hann aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar með íslenska landsliðið.

Á leikmannaferlinum var hann einn besti leikmaður Íslands og lék meðal annars með Feyenoord í Hollandi og Antwerpen í Belgíu. Hann lék 41 A-landsleik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.