Fotbolti.net
26.10.17 - 09:19
Magnús Már Einarsson

Sindri Snær áfram hjá ÍBV (Staðfest)

Sindri Snær verður áfram í Eyjum.

Sindri Snær verður áfram í Eyjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sindri Snær Magnússon, fyrirliði ÍBV, hefur skrifað undir nýjan þrigja ára samning við félagið.

Hinn 24 ára gamli Sindri hjálpaði ÍBV að verða bikarmeistari í sumar og enda í 9. sæti Pepsi-deildarinnar.

Önnur félög höfðu sýnt honum áhuga en Sindri ákvað að vera áfram hjá ÍBV.
Sindri er miðjumaður sem er uppalinn í ÍR en hann hann kom til ÍBV frá Keflavík í byrjun árs 2016.

Hann hefur einnig leikið með Breiðabliki og Selfossi á ferlinum. Sindri hefur verið lykilmaður hjá ÍBV en hann á að baki 39 leiki með félaginu og fimm mörk.

„Virkilega ánægjulegar fréttir að þessi efnilegi peyji verði áfram hjá félaginu,\" segir í fréttatilkynningu frá ÍBV.

„Sindri sendir góða kveðjur frá Asíu en honum hlakkar mikið til komandi tíma í Vestmannaeyjum.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.