26.10.17 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Þórður Inga framlengir við Fjölni (Staðfest)

Þórður Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórður Ingason, markvörður og fyrirliði Fjölnis, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Samningur Þórðar rann út fyrr í mánuðinum en hann hefur nú skrifað undir nýjan samning sem gildir út árið 2019.
Hinn 29 ára gamli Þórður er uppalinn hjá Fjölni en hann hefur spilað með meistaraflokki frá því árið 2004.
Þórður spilaði með KR árið 2010 og BÍ/Bolungarvík 2011 og 2012 en annars hefur hann alltaf leikið með Fjölni.

\"Það er mikið fagnaðarefni að geta tilkynnt það að Þórður Ingason hefur framlengt samningi sínum út árið 2019! Þórð þarf ekki að kynna neitt sérstaklega fyrir Fjölnisfólki og Grafarvogsbúum en hann hefur leikið samtals 220 KSÍ leiki á sínum ferli og var einn besti markvörður Pepsi-deildarinnar á síðasta tímabili,\" segir í fréttatilkynningu frá Fjölni.
„Ásamt því að vera fyrirliði og einn reynslumesti leikmaður liðsins þá var Þórður valinn besti leikmaður meistaraflokks karla á lokahófi félagsins núna á haustdögum vegna frammistöðu sinnar á vellinum síðasta sumar. Knattspyrnudeildin óskar Þórði innilega til hamingju með samninginn og hlakkar til komandi tímabila saman.\"

Frábærar fréttir! Þórður Ingason @doddsabullet hefur framlengt samningi sínum við félagið út árið 2019! #FélagiðOkkar pic.twitter.com/FlC8DkQZSd
— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) October 26, 2017