26.10.17 - 19:39
Ívan Guðjón Baldursson
Úlfur Blandon tekinn við Þrótti Vogum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úlfur Blandon hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Þróttar Vogum sem spilar í fyrsta sinn í 2. deild næsta sumar.
Úlfur, sem er ekki nema 38 ára, hefur tekið að sér ýmis störf undanfarin ár og kom Gróttu í Inkasso-deildina fyrir ári síðan.

Næst á eftir því tók Úlfur við kvennaliði Vals sem endaði í 3. sæti Pepsi-deildarinnar og vann bæði Reykjavíkurmótið og Lengjubikarinn.
„Úlfur tekur við af Brynjari Gestssyni sem hætti á dögunum. Úlfur skrifar undir tveggja ára samning við félagið,\" stendur meðal annars í fréttatilkynningu frá félaginu.
Úlfur, sem er með A-þjálfaragráðu frá UEFA, var aðstoðarþjálfari meistaraflokks Fram sumarið 2015.