Fotbolti.net
26.10.18 - 12:07
Elvar Geir Magnússon

Alex Freyr og Ægir Jarl í KR (Staðfest)

Alex og Ægir.

Alex og Ægir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

KR-ingar héldu fréttamannafund í hádeginu og kynntu þar tvo nýja sóknarmiðjumann.

Alex Freyr Hilmarsson, 25 ára, kemur frá Víkingi Reykjavík og Ægir Jarl Jónasson, 20 ára, kemur frá Fjölni.

Báðir gerðu samninga til þriggja ára.
Alex er fyrrum leikmaður Sindra og Grindavíkur en hann hefur leikið lykilhlutverk með Víkingum og skoraði þrjú mörk í 20 leikjum í Pepsi-deildinni á liðnu tímabili.

Talsvert er síðan það spurðist út að Alex myndi ganga í raðir KR fyrir næsta tímabil.

Ægir Jarl á þrjá U21 landsleiki fyrir Ísland en hann skoraði þrjú mörk í fimmtán leikjum í Pepsi-deildinni á liðnu sumri. Fjölnismenn féllu úr deildinni.

KR hafnaði í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar og leikur í Evrópukeppni á næsta tímabili.

Viðtöl við þá koma inn á Fótbolta.net á eftir.
Alex Freyr Hilmarsson.

Alex Freyr Hilmarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir Jarl.

Ægir Jarl.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.