26.10.18 - 10:19
Elvar Geir Magnússon
Óskar Bragason tekur við Dalvík/Reyni (Staðfest)

Óskar við undirskriftina.

Mynd: Dalvík/Reynir

Óskar við undirskriftina.

Mynd: Dalvík/Reynir
Óskar Bragason hefur verið ráðinn nýr þjálfari Dalvíkur/Reynis fyrir komandi tímabil í 2. deild karla. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Óskar skrifaði undir tveggja ára samning en á sama tíma framlengdu þrír leikmenn liðsins samninga sína.
Óskar hefur undanfarin þrjú tímabil starfað sem aðstoðarþjálfari KA en hann er með UEFA-A þjálfaragráðu.
„Óskar Bragason, sem er fæddur 1977, var lunkinn leikmaður sjálfur en hann lék m.a. með KA, Vask, Nökkva og Magna á sínum ferli. Óskar á að baki landsleiki fyrir yngrilandslið Íslands.
Hann hefur lengi verið viðloðandi knattspyrnu og starfaði sem yngri flokka þjálfari áður en hann færði sig yfir í meistaraflokk karla," segir á heimasíðu Dalvíkur/Reynis.
Stefán Garðar Níelsson, formaður knattspyrnudeildar D/R, hafði þetta að segja:
„Hann er hress og skemmtilegur karakter en fyrst og fremst veit hann haug um fótbolta og með skýra sýn á verkefnið. Við teljum hann rétta manninn í að halda áfram því góða starfi sem unnið er í kringum fótboltann í Dalvíkurbyggð," sagði Stefán.
Dalvík/Reynir vann 3. deildina á liðnu tímabili.