Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 26. október 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldinho kominn með Covid
Mynd: Getty Images
FOX Sports í Brasilíu greinir frá því að goðsögnin Ronaldinho sé komin með kórónuveiruna.

Þetta hefur ekki verið sérlega gott ár fyrir Ronaldinho en hann varði nokkrum mánuðum fangelsaður í Paragvæ ásamt bróður sínum eftir að þeir ferðuðust til landsins á fölsuðum vegabréfum.

Ronaldinho, sem hélt uppá fertugsafmælið í fangelsinu, losnaði ásamt bróður sínum í ágúst, eftir um sex mánaða dvöl. Hann og bróðir hans samþykktu að greiða 200 þúsund dollara til að losna fyrr.

FOX greinir ekki frá ástandi Ronaldinho, sem er löngu búinn að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Lífsstíll atvinnumannsins passaði ekki við glaumgosa og djamm lífsstílinn sem hann aðhyllist.

Sjá einnig:
Ronaldinho aftur í klípu - Bauð fyrirsætum í partí í stofufangelsinu
Ronaldinho um fangelsisvistina: Mikill skellur
Ronaldinho búinn að sitja inni í mánuð - Rannsóknin orðin víðamikil
Athugasemdir
banner
banner