Fotbolti.net
26.11.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Telma Þrastardóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Telma og John Andrews þjálfari Aftureldingar.

Telma og John Andrews þjálfari Aftureldingar.

Canon

Mynd: Heimasíða Aftureldingar

Kvennaboltinn
Sóknarmaðurinn Telma Þrastardóttir hefur gengið til liðs við Aftureldingu frá Val.
,,Afturelding mun styrkja lið sitt fyrir komandi leiktíð og er Telma fyrsti leikmaðurinn sem staðfestir komu sína, en nokkrir eru á leiðinni,\" segir í yfirlýsingu frá Aftureldingu.

Telma lék með Aftureldingu í yngri flokkunum og spilaði með meistaraflokki félagsins sumarið 2010. Þá skoraði hún rúmlega helming marka liðsins í Pepsi-deildinni, 8 mörk í 13 leikjum aðeins 15 ára gömul.

Eftir það gekk Telma til liðs við Stabæk í Noregi þar sem hún varð bikarmeistari með aðalliði félagsins.

Fyrir síðasta tímabil gekk Telma síðan til liðs við Val en hún er nú komin aftur á heimaslóðir.

Telma, sem er 17 ára gömul, hefur leikið 13 leiki með U19 ára landsliði Íslands og 23 leiki með U17 ára liðinu og skorað 10 mörk samtals.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.