26.11.18 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Blazo Lalevic í Leikni F. (Staðfest)
Fimm skrifuðu undir samninga

Blazo Lalevic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blazo Lalevic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið miðjumanninn Blazo Lalevic í sínar raðir. Blazo kemur frá Huginn þar sem hann hefur verið í lykilhlutverki síðan árið 2014.
„Blazo er djúpur miðjumaður sem þekktur er fyrir baráttu og dugnað og verður vonandi frábær viðbót við leikmannahóp félagsins," segir á Facebook síðu Leiknis.
Hinn 34 ára gamli Blazo hefur skorað sjö mörk í 98 leikjum með Huginn. Brynjar Skúlason tók við þjálfun Leiknis í haust en hann hefur þjálfað Huginn undanfarin ár.
Fimm leikmenn hafa einnig skrifað undir nýja tveggja ára samninga við Leikni.
Almar Daði Jónsson er 25 ára miðvörður. Hann á að baki 162 leiki fyrir félagið og hefur sett í þeim 46 mörk. Vel gert af miðverði, en hann hefur jú átt það til að spila framar á vellinum.
Marteinn Már Sverrisson er 19 ára miðju- eða sóknarmaður. Hann á að baki 10 meistaraflokksleiki með Leikni. Bergsveinn Ás Hafliðason er 18 ára markvörður sem á að baki 2 leiki með meistaraflokki.
Ásgeir Páll Magnússon er 18 ára varnar- eða miðjumaður og á hann að baki 20 meistaraflokksleiki. Jón Bragi Magnússon er 18 ára varnarmaður sem enn á eftir að koma við sögu hjá meistaraflokki.

Leikmennirnir fimm sem skrifuðu undir hjá Leikni.

Mynd: Leiknir Fáskrúðsfirði