Fotbolti.net
26.11.18 - 21:11
Brynjar Ingi Erluson

Emil Atlason í HK (Staðfest)

Emil Atla og Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK.

Emil Atla og Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK.

Canon

Mynd: Heimasíða HK

Emil Atlason er genginn í raðir HK frá Þrótti en HK tilkynnti félagaskiptin í kvöld.
Emil er fæddur árið 1993 og er uppalinn í FH en hefur spilað síðustu þrjú tímabil með Þrótturum.

Emil gerði sex mörk í nítján leikjum í deild- og bikar með Þrótturum en hann glímdi við erfið meiðsli á tíma sínum þar.

Hann ætlar að taka slaginn í Pepsi-deildinni með HK-ingum næsta sumar en þetta er mikill hvalreki fyrir HK-inga sem hafa verið metnaðarfullir eftir að tímabilinu lauk.

Emil á þá að baki 12 leiki og 8 mörk fyrir U21 árs landsliðið.

Fjölmargir lykilmenn hafa framlengt og þá er félagið búið að fá Atla Arnarson frá ÍBV.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.