26.11.18 - 10:44
Elvar Geir Magnússon
Gunnar Gunnarsson í Þrótt (Staðfest)

Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Þróttar, og Gunnar Gunnarsson.

Mynd: Þróttur R.

Gunnar Gunnarsson og Þróttur hafa undirritað þriggja ára samning og er leikmaðurinn því samningsbundinn félaginu út keppnistímabilið 2021.
Gunnar er 25 ára gamall varnarmaður sem kemur frá Haukum þar sem hann lék 21 leik á síðasta tímabili í deild og bikar.
Hann hafði áður leikið í Pepsi-deildinni með Val þar sem hann kom við sögu í 20 leikjum árin 2014 og 2015.
„Við bjóðum Gunnar velkominn í Laugardalinn og fögnum komu hans í baráttuna sem framundan er. Lifi…….!" segir á heimasíðu Þróttar.
Gunnar rifti á dögunum samningi sínum við Hauka eftir þrjú ár í herbúðum félagsins og var til reynslu hjá Víkingi Reykjavík á dögunum.
Þróttur hafnaði í fimmta sæti Inkasso-deildarinnar á liðnu sumri en stefnir á að gera atlögu að því að komast upp í Pepsi-deildina á næsta ári.

Heimild: Þróttur

Gunnar spilaði með Víkingum í Bose-mótinu í síðustu viku.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð