„Það fyrsta sem ég vil gera er að biðja Eric Dier opinberlega afsökunar," sagði Jose Mourinho, stjóri Tottenham, eftir 4-2 sigur á Olympiakos í Meistaradeildinni.
„Þetta er aldrei auðvelt fyrir leikmennina og ekki fyrir þjálfarana heldur. Þetta var gert fyrir liðið, við þurftum aðra lausn," sagði Mourinho en hann íhugaði einnig að taka Harry Winks út af eða færa Dier í vörnina.
Sjá einnig:
Mourinho nóg boðið og tók Dier út af í fyrri hálfleik

Olympiakos komst í 2-0, en Tottenham náði að snúa taflinu sér í vil og vinna leikinn 4-2. Með sigrinum tryggði Tottenham sér sæti í 16-liða úrslitunum.
„Við erum komnir áfram og það er það mikilvæga fyrir okkur öll hjá félaginu og stuðningsmennina."
„Olympiakos er mjög gott lið, mjög vel skipulagðir. Þeir réðust á sjálfsálit okkar og sjálfstraust. Þetta var erfitt, en ég sagði leikmönnunum að halda áfram að trúa á sig sjálfa."
Athugasemdir