Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 26. nóvember 2022 12:40
Aksentije Milisic
Elvar Baldvinsson til Vestra (Staðfest) - Þrír leikmenn framlengja
Mynd: Vestri

Elvar Baldvinsson er genginn í raðir Vestra en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kom fram á heimasíðu Vestra fyrir stuttu.


Elvar er Reykdælingur en hann gekk í raðir Þórs frá Völsungi árið 2020. Hann var aftur lánaður til Völsungs og spilaði þar sumarið 2020 og helminginn af tímabilinu árið 2021. 

Á síðasta tímabili spilaði hann 21 leik fyrir Þór í Lengjudeildinni en hann á að baki 226 leiki í meistaraflokki og 42 mörk.

Þá framlengdu þeir Aurélien Norest, Elmar Atli Garðarsson og Daníel Agnar Ásgeirsson allir samninga sína við Vestra um tvö ár.

Davíð Smári Lamude tók við Vestra eftir tímabiliðen hann gerði frábæra hluti hjá Kórdrengjum síðustu ár. Hann kom liðinu upp úr neðstu deild og upp í 1. deildina.


Athugasemdir
banner
banner
banner