lau 26. nóvember 2022 11:40
Aksentije Milisic
Jón Kristinn framlengir við Þrótt Vogum (Staðfest)
Mynd: Þróttur Vogum

Jón Kristinn Ingason, leikmaður hjá Þrótti Vogum, hefur framlengt samning sinn við félagið en Jón er efnilegur leikmaður sem spilaði sextán leiki fyrir félagið síðasta sumar.


Jón er 21 árs en hann á að baki 43 leiki í meistaraflokki. Hann hefur einnig spilað með HK, ÍR og Ými en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Þrótt.

Jón hefur skorað níu mörk á sínum meistaraflokks ferli til þessa.

Þróttur lék í Lengjudeildinni í sumar eftir að hafa farið upp úr 2. deildinni árið áður en liðið féll beint niður aftur ásamt KV og mun því spila í 2. deildinni að ári.



Athugasemdir
banner
banner
banner