Fotbolti.net
10.11.26 - 20:27
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Markahæsti maður deildarinnar gæti skipt um félag

Gustavo Varela er orðaður við Napoli

Gustavo Varela er orðaður við Napoli

Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Napoli ætlar að leggja fram tilboð í Gustavo Varela, framherja Monza, þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Varela hefur farið á kostum í Seríu A á tímabilinu og er markahæsti leikmaður deildarinnar með níu mörk, þrátt fyrir slakt gengi Monza sem er í harðri fallbaráttu.

Hinn 21 árs gamli Varela var á dögunum valinn í portúgalska A-landsliðið í fyrsta sinn og þykir ólíklegt að hann verði lengi áfram hjá Monza.

Samkvæmt Gazzetta dello Sport er Napoli að undirbúa tilboð í framherjann og eru viðræður milli félaganna þegar hafnar.

Napoli er þó ekki eina félagið sem hefur áhuga á Varela og gæti samkeppni annarra félaga flækt málin. Fyrstu skrefin hafa engu að síður verið stigin og verður fróðlegt að sjá hvort Napoli takist að tryggja sér þennan eftirsótta framherja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.