27.01.17 - 11:41
Magnús Már Einarsson
Aron Ýmir og Ragnar Már í ÍA (Staðfest)

Aron Ýmir Pétursson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Aron Ýmir Pétursson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Hægri bakvörðurinn Aron Ýmir Pétursson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt ÍA á nýjan leik. Aron hefur æft með ÍA að undanförnu og leikið með liðinu í Fótbolta.net mótinu. Hann hefur nú skrifað undir tveggja ára samning á Akranesi.
Aron Ýmir fór frá ÍA í Þrótt R. árið 2013. Á síðasta tímabili spilaði Aron fimm leiki með Þrótti í Pepsi-deildinni áður en hann fór í HK þar sem hann spilaði síðari hluta sumars í Inkasso-deildinni.

„Hann var búinn að æfa með Fjölni í haust en leitaði svo eftir því að fá að prófa sig eins og óbreyttur leikmaður. Hann gerði það vel,\" sagði Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, við Fótbolta.net í dag.
„Hann er reyndur leikmaður, sérstaklega eftir dvöl sína hjá Þrótti. Þó að það hafi ekki allt gengið upp hjá honum síðasta sumar þá kemur hann vel inn í hópinn.\"
Aron er 26 ára gamall en hann hefur skorað tvö mörk í 137 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.
Ragnar Már Lárusson hefur einnig samið við ÍA á nýjan leik. Ragnar er 19 ára sóknarmaður en hann fór frá ÍA til Brighton & Hove Albion árið 2013.
Ragnar kom aftur til ÍA um mitt sumar 2015 en í fyrra var hann á mála hjá Fylki fyrri hluta tímabils. Síðari hluta tímabils spilaði hann síðan með Kára í 3. deildinni. Ragnar hefur æft með ÍA í vetur og hann hefur nú samið við félagið.
„Hann er á flottri leið í vetur eftir erfiðan tíma eftir að hann kom heim frá Englandi. Við bindum miklar vonir við hann,\" sagði Gunnlaugur.

Ragnar Már Lárusson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð