27.01.17 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Jordan Tyler í Fram (Staðfest)

Jordan í leik með Hetti á síðasta tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Jordan Tyler hefur gengið liðs við Fram en hann fékk leikheimild með liðinu í dag. Jordan spilaði með Hetti í 2. deildinni í fyrra en árið 2015 lék hann með KF.
Hinn 24 ára gamli Jordan er frá Kanada en hann getur spilað á miðjunni sem og í fremstu stöðunum.
Jordan skoraði fjögur mörk í 21 leik í 2. deildinni í fyrra með Hetti en árið 2015 skoraði hann sex mörk í 19 leikjum með KF.
Jordan getur spilað sinn fyrsta leik með Fram þegar liðið mætir KR í Reykjavíkurmótinu á morgun.
Framarar hafa byrjað Reykjavíkurmótið vel og unnið fyrstu tvo leiki sína þar.