27.01.17 - 20:53
Magnús Már Einarsson
Snodgrass í West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham hefur keypt Robert Snodgrass frá Hull City á 10,2 milljónir punda. Snodgrass krotaði undir þriggja og hálfs árs samning við West Ham í kvöld.
Þessi 29 ára gamli Skoti tvöfaldar laun sín með félagaskiptunum en hann fær 50 þúsund pund í laun á viku hjá West Ham.
Burnley, Middesbrough og fleiri félög voru einnig á eftir Snodgrass en hann valdi West Ham.

„Ég er ánægður. Þetta er risa félag með mikla hefð,\" sagði Snodgrass eftir undirskrift.
Snodgrass var í algjöru lykilhlutverki hjá Hull og það er áfall fyrir liðið að missa hann í fallbaráttunni sem er framundan.