Fotbolti.net
27.01.19 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalska deildin

Cedric Soares til Inter á láni (Staðfest)

Soares farinn á lán til Inter

Soares farinn á lán til Inter

Canon

Mynd: Getty Images

Cedric Soares er genginn til liðs við Inter Milan á láni frá Southampton. Hægri bakvörðurinn verður hjá Inter út tímabilið hið minnsta en Inter hefur ákvæði í lánssamningnum sem þeir geta nýtt til þess að kaupa Soares endanlega.
Samkvæmt Sky á Ítalíu borga Inter fimm hundruð þúsund pund fyrir að fá leikmanninn á láni. Vilji þeir halda Soares lengur, með því að kaupa hann, er ákvæði upp á tæpar 10 milljónir punda í lánssamningnum.

Soares er þriðji leikmaðurinn sem yfirgefur Southampton í þessum glugga en áður höfðu Manolo Gabbiadini og Wesley Hoedt yfirgefið félagið.

Soares kom til Southampton frá Sporting árið 2015 og hefur spilað 119 leiki fyrir Southampton. Hann er portúgalskur landsliðsmaður og varð Evrópumeistari með Portúgal árið 2016.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.