27.01.19 - 10:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cristian Martinez í Víði (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spænski markvörðurinn Cristian Martinez er genginn í raðir Víðis Garði en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Martinez yfirgaf KA eftir síðasta tímabil, en hann var aðeins í eitt tímabil á Akureyri. Þar áður lék hann hjá Víkingi Ólafsvík við góðan orðstír.
Martinez er þrítugur að aldri en hann gerir samning við Víði um að leika með liðinu út leiktíðina 2019. Ljóst er að hann verður mikill liðsstyrkur fyrir Víði.
„Stjórn Víðis er mjög ánægð með komu hans en áætlað er að hann komi í byrjun næsta mánaðar," segir í tilkynningu frá félaginu.
Víðir hafnaði í níunda sæti 2. deildar á síðasta tímabili. Eftir tímabilið tók Hólmar Örn Rúnarsson við liðinu.