27.01.19 - 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Josh Maja kominn til Bordeaux (Staðfest)

Josh Maja.

Mynd: Getty Images

Josh Maja.

Mynd: Getty Images
Franska félagið Bordeaux hefur gengið frá kaupunum á Englendingnum unga Josh Maja.
Maja er 20 ára gamall framherji sem hefur slegið í gegn hjá Sunderland á tímabilinu þar sem hann hefur skorað 15 mörk í 24 deildarleikjum.
Hann vildi ekki skrifa undir nýjan samning við Sunderland og er nú búinn að skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning við franska úrvalsdeildarfélagið Bordeaux en þetta var staðfest í gær.
Talið er að kaupverðið sé um 3,5 milljónir punda en Sunderland er að reyna að fá Will Grigg framherja Wigan til að fylla í skarð Maya, fjórum tilboðum Sunderland í Grigg hefur verið hafnað.