Fotbolti.net
27.01.19 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þróttur V. krækir í Aran frá Haukum (Staðfest)

Aran er mættur aftur í Þrótt Vogum.

Aran er mættur aftur í Þrótt Vogum.

Canon

Mynd: Þróttur Vogum

Þróttur Vogum hefur fengið bakvörðinn Aran Nganpanya aftur til liðs við sig frá Haukum. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu.
Aran er kunnugur staðháttum, en hann ólst upp í Vogum spilaði með Þrótti tímabilin 2014 og 2017.

Hann spilaði 10 leiki með Haukum í Inkasso-deildinni á síðasta tímabili, en hann á í heildina 50 leiki fyrir Hauka í næst efstu deild. Aran, sem er 24 ára, á einnig landsleiki fyrir U17 lið Íslands.

Þróttur hafnaði í sjötta sæti 2. deildar síðasta sumar. Þróttarar hafa verið duglegir að styrkja sig eftir að tímabilinu lauk og hafa leikmenn á borð við Andy Pew, Miroslav Babic og Ólafur Hrannar Kristjánsson samið við félagið.

Hér að neðan má sjá myndband sem Þróttur birti er Aran var kynntur sem leikmaður félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.