Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 27. janúar 2020 11:13
Magnús Már Einarsson
Andrea Mist í Serie A (Staðfest)
Andrea Mist Pálsdóttir.
Andrea Mist Pálsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Andrea Mist Pálsdóttir, leikmaður Þórs/KA, hefur samið við Oribica Calcio í Serie A á Ítalíu. Þetta kemur fram á vefsíðu Þórs.

Liðið er sem stendur í botnsæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með eitt stig að loknum 13 leikjum. Orobica Calcio er staðsett í borginni Bergamo á Norður-Ítalíu, skammt norðaustur af Mílanó.

Andrea Mist hefur legið undir feldi síðan í haust þegar hún nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Þór/KA og ákvað að leita út fyrir landsteinana. Hún hafði nokkra valkosti í nokkrum löndum og ákvað að skella sér í ítalska boltann. Aðspurð segist Andrea Mist á endanum hafa ákveðið að fylgja ráðum föður síns og fylgja hjartanu.

„Ítalía hefur alltaf heillað mig og ítalska deildin er gríðarlega sterk og verður bara sterkari með hverju ári sem líður,“ segir Andrea í samtali við tíðindamann heimasíðu Þórs.

„Ég tel þetta hið fullkomna tækifæri fyrir mig að bæta mig og þroskast sem leikmaður bæði innan sem utan vallar. Að fá að spila á móti svona stórum liðum eins og AC Milan, Juventus, Roma og fleirum stórliðum hefur verið draumur alla mína tíð og er ég gríðarlega spennt að fá að keppast við svona öflug lið.“

„Ég fékk tilboð frá ýmsum liðum frá mismunandi löndum en einhvernveginn leitaði hugur minn alltaf til baka á Ítalíu, og eins og Palli minn besti pabbi orðar það: „Maður á að fylgja hjartanu,” og ég gerði það og tók ákvörðun og skrifaði undir samning við Orobica Calcio. Ég ætla klára tímabilið með þeim og svo sjáum við bara hvað gerist."

Andrea Mist er 21 árs gömul en hún hefur leikið allan sinn feril með Þór/KA fyrir utan lánstíma hjá austurríska félaginu FFC Vorderland á fyrstu mánuðum ársins 2019. Síðastliðið sumar náði hún að spila sinn 100. meistaraflokksleik með Þór/KA.
Athugasemdir
banner