mán 27. janúar 2020 20:45
Aksentije Milisic
Bergwijn færist nær Spurs
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum frá Sky Sports þá er Steven Bergwijn nær því að ganga í raðir Tottenham. Bergwijn er staddur í London og er hann klár í að fara í læknisskoðun og ganga frá kjörum við liðið, nái Tottenham og PSV Eindhoven samkomulagi. Menn eru bjartsýnir á að það gæti klárast fljótlega.

Bergwijn er 22 ára gamall kanntmaður sem hefur skorað 6 mörk í 26 leikjum fyrir PSV á þessu tímabili.

Bergwijn var ekki í hóp hjá PSV í gær í leiknum gegn Twente og því stefnir allt í það að skiptin gangi í gegn.

Tottenham fékk Gedson Fernandes frá Benfica fyrr í mánuðinum en félagið vill styrkja sig enn frekar áður en félagskiptagluginn lokar á föstudaginn kemur.
Athugasemdir
banner
banner
banner