Fotbolti.net
27.02.19 - 17:15
Fótbolti.net

„Aston Villa er í snarrugluðu ástandi"

Úr leik hjá Aston Villa.

Úr leik hjá Aston Villa.

Canon

Mynd: Getty Images

Í Miðju vikunnar var ítarlega rætt um Championship deildina á Englandi. Gamla stórveldið Aston Villa var þar meðal annars til umræðu en liðið er í 13. sæti deildarinnar, átta stigum frá sæti í umspili.

Aston Villa vann fjölmarga titla á árum áður en liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni árið 2017 og hefur verið í brekku síðan þá.

Tap hefur verið á rekstrinum hjá Aston Villa og innan vallar hefur gengið verið erfitt á þessu tímabili. Dean Smith tók við sem stjóri af Steve Bruce í vetur en hann hefur ekki náð að rífa liðið almennilega í baráttu um sæti í umspilinu.
„Þetta er langstærsti klúbburinn sem er þarna niðri og það er fáránlegt að hann sé á þeim stað sem hann er. Klúbburinn er í snarrugluðu ástandi og einhverju limbói sem maður sér ekki fyrir endann á," sagði Gunnar Sigurðarson þegar hann ræddi um Aston Villa í Miðjunni.

„Mig minnir að ég hafi lesið einhversstaðar að ef þeir komast ekki upp núna þá geta þeir lent í því að vera þrjú ár í röð með meira en 39 milljóna punda tap og það gerðir það þá að verkum að þeir fá ekki að fara upp."

„Ef Aston Villa fer ekki upp núna þá missa þeir fullt af mönnum. Allur hópurinn er að verða samningslaus núna eða á næsta ári. Þeir geta ekki samið að því að þeir vita ekki hvernig framtíðin er."

„Ef þeir komast upp í umspilið og komast upp þá eru þeir nokkuð öruggir en þeir geta lent í sturluðu dæmi ef þeir komast ekki upp. Þeir eru búnir að veðja of mikið við pókerborðið."


Nánar er rætt um Aston Villa í Miðju vikunnar en þar er meðal annars spjallað um leikmannamál liðsins, Birki Bjarnason og markahrókinn Tammy Abraham.

Smelltu hér til að hlusta á Miðjuna
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er á mála hjá Aston Villa.

Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er á mála hjá Aston Villa.

Canon

Mynd: Getty Images

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.