Fotbolti.net
27.02.19 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Kolo Toure í þjálfaralið Leicester (Staðfest)

Kolo Toure og Brendan Rodgers.

Kolo Toure og Brendan Rodgers.

Canon

Mynd: Getty Images

Kolo Toure hefur verið ráðinn sem þjálfari hjá Leicester City en hann mun starfa með Brendan Rodgers sem var ráðinn knattspyrnustjóri þar í gær.

Toure lauk ferli sínum sem leikmaður hjá Celtic árið 2017 en síðan þá hefur hann verið í þjálfaraliðinu þar ásamt Rodgers.
Toure spilaði einnig undir stjórn Rodgers hjá Liverpool á sínum tíma.

Hinn 37 ára gamli Toure þekkir ensku úrvalsdeildina inn og út en hann vann titla þar bæði með Arsenal og Manchester City á ferli sínum sem leikmaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.