27.02.19 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Mykolas Krasnovskis í Sindra (Staðfest)

Mykolas Krasnovskis.

Mynd: Úr einkasafni

Mykolas Krasnovskis.

Mynd: Úr einkasafni
Sindri hefur fengið framherjann Mykolas Krasnovskis í sínar raðir frá Leikni Fáskrúðsfirði.
Mykolas kom til Leiknis í júlí í fyrra eftir að hafa skorað átta mörk í sjö leikjum með Snæfell/UDN í 4. deildinni fyrri hluta sumars.

Hinn 24 ára gamli Mykolas er frá Litháen en hann skoraði tvö mörk í tíu leikjum með Leikni í 2. deildinni síðari hluta tímabils í fyrra.
Bæði mörkin komu í sigurleik gegn Gróttu en í kjölfarið var hann valinn leikmaður umferðarinnar.
Sindri spilar í 3. deildinni en liðið vann Augnablik 2-0 í fyrsta leik í B-deild Lengjubikarsins um síðustu helgi.