Fotbolti.net
27.02.19 - 22:10
Magnús Már Einarsson

Willy Caballero: Kepa er sama um það sem gerðist

Willy fékk ekki að koma inn á gegn City á sunnudaginn.  Hann byrjaði hins vegar í kvöld.

Willy fékk ekki að koma inn á gegn City á sunnudaginn. Hann byrjaði hins vegar í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Willy Caballero hélt hreinu í marki Chelsea þegar liðið lagði Tottenham 2-0 í Lundúnarslag í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, ákvað að setja markvörðinn Kepa Arrizabalaga á bekkin eftir að hann neitaði að koma út af undir lokin gegn Manchester City í úrslitum enska deildabikarsins á sunnudaginn.
Caballero var þakklátur fyrir stuðninginn hjá Kepa fyrir leikinn í kvöld.

„Það eru mjög góðar fréttir að honum er sama um það sem gerðist," sagði Caballero eftir leikinn í kvöld.

„Við erum tilbúnir og Kepa var frábær í dag með því hvernig hann sýndi mér stuðning. Hann lærir við, við lærum og ég þakka honum fyrir stuðninginn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.