27.03.19 - 21:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aron Kári lánaður í HK (Staðfest)

Aron Kári í leik með Keflavík í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Varnarmaðurinn ungi og efnilegi Aron Kári Aðalsteinsson hefur verið lánaður í HK frá Breiðabliki. Þetta kemur fram á blikar.is.
Aron Kári verður tvítugur í sumar og hefur spilað 11 leiki með meistaraflokki Breiðabliks.
Á síðustu leiktíð var hann á láni hjá bæði Keflavík og ÍR. Aron Kári á að baki nítján leiki með yngri landsliðum Íslands.
Hjá Keflavík spilaði Aron Kári átta leiki í Pepsi-deildinni í fyrra og hjá ÍR spilaði hann fjóra leiki í Inkasso-deildinni.
Í haust stefnir Aron á háskólanám í Bandaríkjunum og mun því ekki klára tímabilið með HK.

Heimild: blikar.is