27.03.19 - 17:00
Arnar Daði Arnarsson
Bojan Stefán í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Bojan í leik með Keflavík síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bojan Stefán Ljubicic hefur gengið til liðs við Reyni Sandgerði og leikur því með liðinu í 3. deildinni í sumar. Þetta var tilkynnt á Facebook síðu Reynis í gærkvöldi.
„Það gleður okkur að tilkynna að hinn gríðarsterki leikmaður, Bojan Stefán Ljubicic, hefur gert eins árs samning við ksd. Reynis," segir til að mynda í tilkynningunni.
Bojan er 26 ára Keflvíkingur og er sonur Zorans Daníel Ljubicic sem var aðstoðarþjálfari Reynis síðari hluta síðastliðins tímabils. Bojan hefur alls leikið 115 leiki í meistaraflokki, þar af 94 í úrvalsdeild og skorað í þeim fimm mörk.
Á ferli sínum hefur hann leikið með Keflavík, Fram og Fjölni í efstu tveimur deildunum.
Reynismenn hafa styrkt sig töluvert fyrir átökin í 3. deildinni. Þeir hafa til að mynda fengið þá Luka Jagacic, Birki Frey Sigurðsson, Admir Kubat, Martein Urbancic, Theodór Guðna og Aron Elís.

Mynd: Reynir Sandgerði