Fotbolti.net
27.03.19 - 16:40
Elvar Geir Magnússon

Lucas Hernandez til Bayern (Staðfest)

Lucas Hernandez á leið til Þýskalands.

Lucas Hernandez á leið til Þýskalands.

Canon

Mynd: Getty Images

Bayern München hefur tryggt sér þjónustu vinstri bakvarðarins Lucas Hernandez.

Frakkinn kemur frá Atletico Madrid en hann hefur gert fimm ára samning við Þýskalandsmeistarana. Samningurinn tekur gildi 1. júlí.
Bæjarar borga 80 milljónir evra fyrir hinn 23 ára Hernandez sem var í franska landsliðshópnum sem varð heimsmeistari síðasta sumar.

Hasan Salihamidzic, íþróttastjóri Bayern, hefur þetta að segja:

„Ég er mjög ánægður með að hafa fengið einn besta varnarmann heims, heimsmeistara, í Lucas Hernandez. Hann getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður," sagði Salihamidzic.

Hernandez, sem hefur verið hjá Atletico síðan 2007. er meiddur á hné og fer í aðgerð í dag. Hann vann Evrópudeildina með Atletico árið 2018.

Bayern hefur einnig tryggt sér Benjamin Pavard, liðsfélaga Hernandez í franska landsliðinu. Pavard, sem var í byrjunarliðinu gegn Íslandi, kemur frá Stuttgart í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.