27.04.18 - 13:30
Magnús Már Einarsson
Alexis Kiehl í Selfoss (Staðfest)

Alexis Kiehl og Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss, handsala samninginn.

Mynd: Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska framherjann Alexis Kiehl og mun hún spila með félaginu í Pepsi-deild kvenna í sumar.
Alexis hefur æft með Selfyssingum undanfarnar vikur og búið er að ganga formlega frá samningum.

Kiehl, sem er 22 ára gömul, kemur til Selfoss úr bandaríska háskólaboltanum en hún var markahæsti leikmaður Dayton háskólans í Ohio á síðasta ári og valin leikmaður ársins hjá skólanum.
„Mér líst mjög vel á Alexis. Hún er búin að vera hjá okkur síðan í mars og smellur vel inn í þetta hjá okkur. Hún er kraftmikill og snjall leikmaður, með góða fótboltagreind, flink með boltann og mjög góð að klára færi,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss.
Selfyssingar hefja leik í Pepsi-deild kvenna föstudaginn 4. maí þegar liðið heimsækir Val að Hlíðarenda. Selfossi er spáð áttunda sæti í spá Fótbolta.net fyrir sumarið.