Fotbolti.net
27.04.18 - 11:24
Magnús Már Einarsson

Rashid Yussuff í Víking Ó. (Staðfest)

Rashid Yussuff.

Rashid Yussuff.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur Ólafsvík hefur fengið Englendinginn Rashid Yussuff í sínar raðir fyrir Inkasso-deildina í sumar.

Rashid var á mála hjá ÍA í fyrra en hann spilaði sautján leiki þegar liðið féll úr Pepsi-deildinni. Þessi 27 ára gamli leikmaður spilaði mikið í vinstri bakverði hjá ÍA en hann getur einnig leikið á miðjunni og á kantinum.

Rashid var á reynslu hjá Víkingi Ólafsvík í æfingaferð liðsins á Spáni á dögunum og í kjölfarið var samið við hann.

Rashid er uppalinn hjá Charlton á Englandi en hann lék í nokkur ár með Gillingham og AFC Wimbledon.
Víkingur Ólafsvík mætir Hamri í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á þriðjudaginn áður en liðið leikur við ÍR í fyrstu umferðinni í Inkasso-deildinni eftir rúma viku.

Komnir:
Emmanuel Eli Keke frá Gana
Francisco Marmolejo Mancilla frá Svíþjóð
Gonzalo Zamorano Leon frá Hugin
Ibrahim Sorie Barrie frá Síerra Leóne
Ívar Reynir Antonsson frá Fram
Rashid Yussuf frá ÍA

Farnir:
Aleix Egea
Alfreð Már Hjaltalín í ÍBV
Cristian Martinez Liberato í KA
Egill Jónsson
Eivinas Zagurskas í Snæfell
Eric Kwakwa
Farid Zato í Kórdrengi
Gabrielius Zagurskas
Guðmundur Steinn Hafsteinsson í Stjörnuna
Gunnlaugur Hlynur Birgisson í Víking R.
Kenan Turudija í Selfoss
Pape Mamadou Faye
Tomasz Luba hættur
Þorsteinn Már Ragnarsson í Stjörnuna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.