27.04.18 - 12:37
Magnús Már Einarsson
Trausti Sigurbjörns í Leikni R. (Staðfest)

Trausti í leik með Haukum í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Trausti í leik með Haukum í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir R. hefur fengið markvörðinn Trausta Sigurbjörnsson til liðs við sig.
Trausti varði mark Hauka í fyrra en í vetur var hann hjá Víkingi R. í nokkra mánuði áður en samningar náðust ekki um áframhald.
Trausti á að berjast við Eyjólf Tómasson um markvarðarstöðuna hjá Leikni. Hann þekkir til hjá Leikni því sumarið 2010 var hann varamarkvörður liðsins.
Hinn 27 ára gamli Trausti er uppalinn hjá ÍA en hann lék með Þrótti R. í nokkur ár áður en hann fór til Hauka fyrir síðasta tímabil.
<a href=\"http://fotbolti.net/news/27-04-2018/span-style-color-green-b-spa-thlfara-og-fyrirlida-i-inkasso-deildinni-8-saeti-b-span\" target=\"_blank\">Leikni er spáð áttunda sæti í Inkasso-deildinni í sumar</a> í spá fyrirliða og þjálfara í deildinni. Liðið mætir Breiðabliki í Mjólkurbikarnum á þriðjudag áður en það heimsækir ÍA í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar eftir rúma viku.

Trausti mættur í Efra-Breiðholtið. Bjóðum hann velkomin í Leikni pic.twitter.com/qC1Ncccuef
— Leiknir Reykjavík FC (@LeiknirRvkFC) April 27, 2018