Fotbolti.net
27.04.19 - 22:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hólmfríður Magnúsdóttir semur við Selfoss (Staðfest)

Hólmfríður handsalar samninginn við Jón Steindór Sveinsson, formann knattspyrnudeildar Selfoss.

Hólmfríður handsalar samninginn við Jón Steindór Sveinsson, formann knattspyrnudeildar Selfoss.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Kvennaboltinn
Selfoss hefur heldur betur fengið liðsstyrk fyrir átökin í Pepsi Max-deild kvenna því Hólmfríður Magnúsdóttir var að skrifa undir samning við félagið.
Hún skrifar undir eins árs samning við Selfoss og mun því leika með liðini í sumar.

Hin 34 ára gamla Hólmfríður á að baki 112 A-landsleiki fyrir Ísland og 37 landsliðsmörk.

Hún er uppalin hjá KFR en hefur á sínum ferli leikið með KR, Val, ÍBV, Avaldsnes í Noregi, Kristianstad í Svíþjóð og Philadelphia Independence í Bandaríkjunum.

„Ég ætlaði ekki að spila fótbolta í sumar, en þegar grasið fór að grænka þá fór mig að kitla í tærnar og ég fór að íhuga þetta fyrir tveimur vikum síðan. Ég finn að áhuginn er enn fyrir hendi þannig að ég er ekki tilbúin til að hætta strax," segir Hólmfríður

Hólmfríður spilaði síðast með KR 2017 en var ekki með í fyrra þar sem hún var ólétt.

„Ég ákvað bara að njóta þess að vera í fæðingarorlofi og er búin að ferðast mikið. Ég byrjaði að æfa sjálf í byrjun apríl en mun byggja mig hægt og rólega upp í samráði við Alfreð þjálfara. Ég er ekkert að stressa mig en á meðan ég er að byggja mig upp þá get ég nýtt reynsluna mína og gefið af henni til ungu stelpnanna. Þetta er ungur hópur og það eru margar efnilegar stelpur hérna."

„Ég er mjög spennt fyrir þessu. Ég er bara búin að mæta á eina æfingu en mér finnst hópurinn flottur. Ég á heima hérna á Selfossi og þetta hentar mér vel. Það eru spennandi tímar framundan og vonandi næ ég að setja inn eitt eða tvö mörk seinna í sumar."

Selfyssingum er spáð níunda sæti í spá Fótbolta.net fyrir sumarið. En það er alveg ljóst að koma Hólmfríðar styrkir liðið mikið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.