Fotbolti.net
27.04.26 - 21:52
Baldvin Már Borgarsson

Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli

Auglýsing
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri var svekktur með úrslitin í leik sinna manna gegn Víkingum í kvöld, en eftir jafnan fyrri hálfleik tapaði Skaginn 4-0 í Víkinni.

„Ég held að 4-0 gefi ekki rétta mynd af leiknum, þessi tvö mörk sem við fáum á okkur með stuttu millibili í kringum 60. mínútu hreinlega drápu leikinn. Svo reyndum við ýmislegt til þess að komast aftur inn í leikinn og fengum á okkur tvö mörk í lokin, 4-0 endurspeglar ekki eins og leikurinn var.''

„Við verðum bara að halda áfram, við komum hérna og spilum á móti hörku góðu liði, það munar ekkert á milli liðanna í 60. mínútur og það sem að okkur vantar en þeir hafa er drápseðli, þeir eru góðir í að klára leikina og okkur vantar.''

Nánar er rætt við Lárus í spilaranum hér að ofan þar sem hann fer meðal annars ofan í saumana á áhugaverðri utanlandsferð þriggja leikmanna liðsins á dögunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.