Fotbolti.net
27.05.18 - 16:42
Ingólfur Stefánsson

Rotherham upp í Championship eftir framlengingu (Staðfest)

Richard Wood var hetja Rotherham í dag

Richard Wood var hetja Rotherham í dag

Canon

Mynd: Getty Images

Rotherham 2-1 Shrewsbury
1-0 Richard Wood (32\')
1-1Alex Rodman (54\')
2-1Richard Wood (104\')

Rotherham og Shrewsbury mættust í úrslitaleik í umspili um sæti í Championship-deildinni á Englandi í dag. Rotherham féll úr Championship á síðasta ári en Shrewsbury gat komist þangað í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Það stefndi allt í það fyrr í vetur að Shrewsbury væru á leið beint upp í Championship áður en liðið vann einungis einn af síðustu sex leikjum sínum.

Leikurinn byrjaði vel og eftir aðeins 8 mínútur fengu Rotherham vítaspyrnu þegar Omar Beckles togaði Richard Wood niður í vítateignum eftir hornspyrnu.

Dean Henderson gerði sér lítið fyrir og varði vítaspyrnu David Ball. Rotherham héldu áfram að sækja eftir vítaspyrnuna og þeim tókst að brjóta ísinn á 32 mínútu.

Varnarmaðurinn og fyrirliðinn Richard Wood skallaði þá boltann í markið eftir hornspyrnu. Staðan í hálfleik 1-0.

Shrewsbury komu mun öflugri til leiks í síðari hálfleiknum og eftir tæpan klukkutíma leik tókst þeim að jafna metin.

Alex Rodman kom þá boltanum framhjá markmanni Rotherham og í netið eftir góða sókn Shrewsbury manna.

Ekki voru fleiri mörk skoruð í venjulegum leiktíma svo að það þurfti að grípa til framlengingar.

Eftir 104 mínútur komust Rotherham yfir á ný og aftur var það Richard Wood sem skoraði. Joe Newell átti fyrirgjöf sem Wood stökk á og kom boltanum í netið.

Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum og Rotherham munu því spila í Championship-deildinni á næsta tímabili, en liðið fer upp með með Wigan og Blackburn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.