Fotbolti.net
27.05.19 - 13:49
Arnar Daði Arnarsson

Gary Martin á leið í ÍBV?

Gary Martin á leið til Eyja?

Gary Martin á leið til Eyja?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Fréttablaðsins er Gary Martin að semja við ÍBV út tímabilið eftir að hann var leystur undan samningi hjá Val um helgina.

Fréttablaðið greinir frá.
Samkvæmt Fréttablaðinu mun Gary Martin semja við ÍBV en fær ekki leikheimild með Eyjamönnum fyrr en í júlí þegar leikmannaglugginn opnar á ný.

Gary Martin gekk í raðir Vals fyrr á þessu ári en í síðustu viku komst Gary Martin og Valur að samkomulagi um starfslok eftir ósætti hans og Ólafs Jóhannessonar, þjálfara Vals.

Sjá einnig:
Hvaða félög hafa áhuga á Gary Martin?
Gary Martin yfirgefur Val (Staðfest)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.