Úrúgvæski sóknarmaðurinn Edinson Cavani er samningslaus eftir tvö ár hjá Manchester United í enska boltanum.
Cavani átti flott fyrsta tímabil, þar sem hann skoraði 17 mörk í 39 leikjum, en honum gekk ekki jafn vel á leiktíðinni sem er að ljúka.
Cavani kvaddi stuðningsmenn Man Utd í dag og þakkaði þeim kærlega fyrir stuðninginn.
„Ég ber ekkert nema þakklæti í hjarta til stuðningsmanna Manchester United sem hafa sýnt mér gífurlega mikla virðingu á dvöl minni hjá félaginu," sagði Cavani.
„Ég er virkilega þakklátur og mun yfirgefa félagið með góðar minningar af ástinni sem stuðningsmenn sýndu mér."
Sjá einnig:
Kvaddi með því að gefa stuðningsmanni fingurinn
Athugasemdir