27.06.18 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Cancelo til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus er búið að staðfesta félagaskipti Joao Cancelo, sem gerði frábæra hluti á láni hjá Inter á síðasta tímabili.
Cancelo er 24 ára hægri bakvörður frá Portúgal, sem komst þó ekki í hópinn fyrir HM þrátt fyrir að eiga yfir 80 landsleiki að baki, sjö fyrir A-landsliðið.
Cancelo er afar sóknarsinnaður og getur einnig leikið á hægri kanti eða í sóknarlínunni.
Cancelo kemur frá Valencia og greiðir Juve rúmlega 40 milljónir evra fyrir hann.
Bakvörðurinn stóðst læknisskoðun í morgun og skrifaði undir fimm ára samning.