Fotbolti.net
27.06.18 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Diallo næst dýrastur í sögu Dortmund (Staðfest)

Kemur til með að fylla í skarð Sokratis

Diallo næst dýrastur í sögu Dortmund (Staðfest)
Canon

Mynd: Borussia Dortmund

Dortmund hefur fest kaup á franska miðverðinum Abdou Diallo, hann kemur frá Mainz 05 og væntanlega að fylla í skarð Sokratis Papastathopoulos sem er á leið til Arsenal.

Talið er að Dortmund borgi 28 milljónir evra fyrir Diallo sem gerir hann að næst-dýrasta leikmanni í sögu félagsins á eftir Andre Schurrle sem var keyptur fyrir 30 milljónir evra frá Wolfsburg 2016.
Diallo spilaði aðeins í eina leiktíð fyrir Mainz, en hann kom þangað í fyrra frá Mónakó. Hann heillaði með frammistöðu sinni hjá Mainz þar sem hann spilaði 30 leiki í öllum leikjum. Mainz borgaði aðeins 5 milljónir evra til að fá hann frá Mónakó.

Diallo er 22 ára og skrifaði hann undir samning til 2023 við Dortmund.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Dortmund fær í sumar. Áður hafði félagið fengið miðjumanninn Thomas Delany frá Werder Bremen, kantmanninn Marius Wolf frá Frankfurt og markvörðinn Marwin Hitz frá Augsburg.

Dortmund endaði í fjórða sæti á síðustu leiktíð í þýsku úrvalsdeildinni. Svisslendingurinn Lucien Favre tók við liðinu eftir tímabilið.

😃 Heute in Dortmund... pic.twitter.com/1N4WKU79Js

— Borussia Dortmund (@BVB) June 26, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.