Fotbolti.net
27.06.18 - 20:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fanndís Friðriks í Val (Staðfest)

Fanndís er mætt í Valsbúninginn.

Fanndís er mætt í Valsbúninginn.

Canon

Mynd: Valur

Kvennaboltinn
Landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir hefur samið við Val og gerir hún tveggja ára samning við félagið.

Fanndís lék á síðasta tímabili í Frakklandi með Marseille. Hún lýsti Frakklandsdvölinni sem stórfurðulegri í viðtali við Fótbolta.net fyrr í mánuðinum.
Þettu eru frábær tíðindi fyrir Valsmenn sem eru í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Liðið er eftir sjö umferðir í öðru sæti, einu stigi á eftir Þór/KA. Næsti leikur Vals er gegn Þór/KA.

Fanndís er í lykilhlutverki í íslenska landsliðinu en hún hefur skorað 104 mörk í 197 leikjum hér á landi ásamt því að hafa skorað 11 mörk í 87 leikjum fyrir A-landslið Íslands.

Fanndís lék síðast hér á landi með Breiðabliki en gera má ráð fyrir því að val hennar hafi staðið á milli þess að fara aftur í Breiðablik, ÍBV eða í Val. Hún valdi Val.

„Koma Fanndísar til félagsins er góð viðurkenning fyrir það starf sem unnið er á Hlíðarenda og mun hún styrkja liðið í komandi baráttu,\" segir í tilkynningu frá Hlíðarendafélaginu.

Sjá einnig:
Hallbera: Alltaf að rétta Fanndísi samning og penna

VELKOMIN Í VAL @fanndis90 👏🏻✨🚨⚽️🍾🔴 https://t.co/L6DDJAHiwK

— Hallbera Gisladottir (@HallberaGisla) June 27, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.