27.07.16 - 17:09
Elvar Geir Magnússon
Immobile til Lazio (Staðfest)

Immobile á góðri stund í Dortmund.

Mynd: Getty Images

Immobile á góðri stund í Dortmund.

Mynd: Getty Images
Lazio hefur fengið til sín ítalska landsliðsmanninn Ciro Immobile en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni.
Immobile kemur frá Sevilla en hann var á láni seinni hluta síðasta tímabils hjá Torino.
Immobile kemur frá Sevilla en hann var á láni seinni hluta síðasta tímabils hjá Torino.
Lazio borgar 8,5 milljónir evra fyrir þennan 26 ára framherja sem áður lék með Dortmund og Juventus.
Lazio hafnaði í 8. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Lazio hafnaði í 8. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðustu leiktíð.
