Fotbolti.net
27.07.18 - 12:10
Elvar Geir Magnússon

Velja treyju Man Utd þá næst ljótustu - Man City á toppnum

Treyja Man Utd skoraði ekki hátt.

Treyja Man Utd skoraði ekki hátt.

Canon

Mynd: Getty Images

Mirror skoðaði aðalbúninga liðanna í ensku úrvalsdeildinni fyrir komandi tímabil og raðaði þeim í sæti. Hægt er að skoða allan listann með því að smella hérna.
Meistararnir í Manchester City eru einnig á toppnum þegar kemur að treyjum samkvæmt vali Mirror en erkifjendurnir í Manchester United er í 19. sæti.

Það er aðeins búningur Cardiff, sem landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson spilar fyrir, sem skorar lægra en United.

Dómnefnd Mirror telur að Manchester United hafi gert mistök með því að nota ekkert hvíta litinn í búningi sínum þetta tímabilið.

Tottenham skorar ekki hátt og er ástæðan sögð sú að treyjan virki ekki nema stuttbuxurnar séu líka með og það henti stuðningsmönnum ekki.

Liverpool og Chelsea eru um miðja töfluna en hana má sjá í heild sinni hér að neðan.

Flottustu treyjur ensku úrvalsdeildarinnar:
1 Manchester City
2 Arsenal
3 Leicester
4 Wolves
5 West Ham
6 Burnley
7 Watford
8 Fulham
9 Liverpool
10 Chelsea
11 Huddersfield
12 Newcastle
13 Everton
14 Tottenham
15 Brighton & Hove Albion
16 Bournemouth
17 Southampton
18 Crystal Palace
19 Manchester United
20 Cardiff
Pierre-Emerick Aubameyang.

Pierre-Emerick Aubameyang.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.