27.07.19 - 20:31
Brynjar Ingi Erluson
ÍA semur við króatískan markvörð (Staðfest)

Skagamenn styrkja sig fyrir átökin í síðari hlutanum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnudeild ÍA tilkynnti í kvöld komu krótaíska markvarðarins Dino Hodzic en hann gerir samning út tímabilið.
Hodzic er fæddur árið 1995 en hann hefur spilað með félögum á borð við Vejle og Fredericia í Danmörku.
Hann var síðast á mála hjá Mezokövesd í Ungverjalandi en varð samningslaus um mánaðarmótin.
Hodzic samdi við ÍA út þetta tímabil en hann á að veita Árna Snæ Ólafssyni samkeppni.
Skagamenn eru í 3. sæti Pepsi Max-deildarinnar með 22 stig þegar þrettán umferðir eru búnar af mótinu.