27.07.19 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson
KV fær tvo leikmenn á láni frá Fram (Staðfest)

Magnús Snær spilar með KV út þetta tímabil

Mynd: Magnús Snær

KV í 3. deild karla fékk í dag tvo leikmenn á láni frá Fram en það eru þeir Arnór Siggeirsson og Magnús Snær Dagbjartsson.
Arnór er fæddur árið 1998 og uppalinn í Fram en hann hefur spilað glimrandi vel með Úlfunum í 4. deildinni á þessari leiktíð þar sem hann er með 12 mörk í 12 leikjum.
Hann er með 9 mörk í 9 deildarleikjum og þá 3 mörk í 3 bikarleikjum en hann var á láni hjá Úlfunum frá Fram. Hann er nú kominn í 3. deildina til KV þar sem hann mun klára tímabilið.
Þá er Magnús Snær Dagbjartsson einnig kominn til KV. Hann er fæddur árið 1999 og var einnig á láni hjá Úlfunum frá Fram. Hann er búinn að skora 6 mörk í 13 leikjum með liðinu.
Viðar Þór Sigurðsson fékk þá einnig félagaskipti í KV frá Kríu en hann skoraði 5 mörk í 7 leikjum í 4. deildinni með Kríu í sumar.
KV er í 4. sæti 2. deildar með 26 stig en liðið mætir Einherja í dag.